Bílvelta varð á Vífilsstaðavegi við Reykjanesbraut um tíuleytið í morgun og sluppu tveir menn sem í bifreiðinni voru með skrámur og eymsli í baki. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bifreiðinni ekið frá Vífilsstöðum að gatnamótum við Reykjanesbraut, missti ökumaður þá stjórn á bílnum, sem hafnaði utan vegar Garðabæjarmegin við Vífilsstaðaveg.