Ekið var á dreng á reiðhjóli á Sundlaugavegi í Reykjavík um hálf fimmleytið í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Var drengurinn fluttur á sjúkrahús, en hann mun hafa fótbrotnað. Segir lögreglan að hjálmur sem hann var með hafi bjargað miklu, því höfuð drengsins skall í framrúðu bílsins.