Hafna hugmyndum um lagningu háspennulína

Háspennulínur á Austurlandi
Háspennulínur á Austurlandi mbl.is/Einar Falur

Á fundi hjá skipulags og bygginganefnd Grindavíkur þann 13. september 2007 var öllum tillögum Landsnets um háspennulínur í landi Grindavíkur hafnað. Nefndin samþykkir aðeins háspennulínur meðfram þeim línum sem fyrir eru í sveitarfélaginu.

Í vor hafnaði Sandgerðisbær háspennulínum fyrir hugsanlegt álver í Helguvík og stóð bæjarstjórnin við ákvörðun sína þrátt fyrir ítrekaðar óskir Landsnets um að fá að leggja háspennulínu um Ósabotna og Stafnes, að því er segir í frétt á vef Landverndar.

„Nýlega neitaði bæjarráð í Vogum að taka afstöðu til þeirra valkosta sem Landsnet bauð upp á þar sem jarðstrengir voru ekki í boði þrátt fyrir óskir þess efnis á fundi með Landsneti. Þar með virðist ljóst að ef álver rís i Helguvík þá þarf að flytja alla orku með jarðstreng," samkvæmt frétt Landverndar.

Vefur Landverndar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert