Þrír voru teknir fyrir ölvun við akstur í nótt á höfuðborgarsvæðinu. Þá var framið innbrot í verslunina Ormsson í Síðumúla í nótt, lögregla rakst á konu skammt þar frá þegar málið var kannað og við leit fannst þýfið falið bak við gám. Málið telst því upplýst.