Tveir hvalir hafa verið að dóla í höfninni í Vestmannaeyjum í dag, nánar tiltekið við Friðarhöfn. Talið er að um sé að ræða tvær andarnefjur og allt bendir til þess að þær hafi villst inn í höfnina og rati ekki út aftur. Eins og gefur að skilja vakti koma hvalanna mikla athygli enda ekki á hverjum degi sem hvalir birtat í höfninni, hvað þá tveir.
Fullorðinn tarfur af andarnefjaætt getur mest orðið tæpir tíu metrar að lengd en kýrin tæpir níu metrar. Talið er að andarnefjur lifi í 40 til 60 ár og að um 42 þúsund andarnefjur séu á íslenska hafsvæðinu. Andarnefjur kunna best við sig á djúpslóð og heldur sig oftast opnu hafi, utan landgrunnsmarka þar sem dýpið er eitt til tvö þúsund metrar.