Ökumaður missti stjórn á bíl sínum

Ungur ökumaður sem enti í lausamöl við Grundará á Snæfellsnesvegi missti stjórn á bílnum og lenti utan vegar skömmu fyrir hádegi í dag. Ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist lítillega en fólksbíllinn er talinn gjörónýtur. Að sögn lögreglu leikur ekki grunur á ölvun eða hraðakstri en talið er að reynsluleysi ökumanns hafi valdið óhappinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert