Bíll valt á Skeiðavegi skömmu eftir miðnætti. Ökumaður sem var einn í bílnum var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á sjúkrahús en meiðsl hans voru talin minniháttar. Að sögn lögreglunnar á Selfossi mun ökumaður hafa ekið inn á hálkukafla og misst stjórn á bílnum sem fór um þrjár veltur og er talinn ónýtur. Önnur bílvelta varð um hálf ellefu við Hraunaveitur þar valt jeppi í hálku og var ökumaður fluttur með sjúkraflugi á Landspítalann vegna höfuðmeiðsla.
Að sögn lækna á Landspítalanum verður maðurinn útskrifaður síðar í dag.