Forsætisráðherra segir samstarf Viðskiptaráðs og stjórnvalda skipta miklu

Geir H. Haarde
Geir H. Haarde mbl.is/ÞÖK

Í ávarpi sínu á 90 ára afmælisfundi Viðskiptaráðs lýsti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, yfir fullum vilja til frekara samstarfs við Viðskiptaráð og vonaði að ráðið og stjórnvöld gætu unnið áfram að mikilvægum framfaramálum sem stefna að því að bæta lífskjör í landinu. Sagði forsætisráðherra, á myndbandi sem sýnt var á fundinum þar sem forsætisráherra er staddur í opinberri heimsókn í Svartfjallalandi, að samstarf Viðskiptaráðs og ríkisstjórnarinnar hafi skipt miklu máli í þeim breytingum sem átt hafa sér stað í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár.

Sérsveitin hefur störf innan fárra vikna

Forsætisráðherra fór stuttlega yfir tiltekin verkefni ráðsins og minntist þar sérstaklega á skýrslu um fjárhagslegan stöðugleika sem ráðið gaf út snemma á síðasta ári. Hann taldi skýrsluna hafa skipt sköpum og styrkt stöðu íslensks atvinnulífs í mikilli stormatíð.

Ráðherra minntist einnig á síðastliðið Viðskiptaþing, þar sem ímyndarmál Íslands voru til umfjöllunar. Fyrir þingið tók forsætisráðherra þátt í undirbúningsvinnu tengdri ímyndarverkefninu og sagði það hafa verið afskaplega skemmtilegt og ánægjulegt. Ennfremur tilkynnti ráðherra að sérsveitin, sem hann nefndi upphaflega á Viðskiptaþinginu, væri ætlað að hefja störf innan fárra vikna.

Um 90 tillögur að bættri samkeppnishæfni sagði ráðherra m.a.: „Í fljótu bragði sýnist mér að þar séu margar mjög góðar hugmyndir, en aðrar kannski síðri. Það er eins og gengur þegar stór hugmyndabanki er á ferðinni. En það er líka alkunna að Róm var ekki byggð á einum degi, og það sem kann að virðast óraunhæft eða jafnvel framúrstefnulegt í dag, t.d. af stjórnmálalegum ástæðum, getur orðið fyllilega raunhæft á morgun. Þannig við sjáum til hvað verður að raunveruleika af þessum tillögum.” sagði Geir í ávarpi sem flutt var á myndbandi á fundinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert