Dekk losnaði undan vörubíl og lenti á fólksbíl

mbl.is/Guðmundur Karl

Fólksbifreið skemmdist mikið á sjöunda tímanum í dag þegar dekk losnaði undan vörubíl og lenti framan á fólksbifreiðinni. Meiðsl ökumannsins eru talin minniháttar. Atvikið átti sér stað þar sem bílarnir mættust á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut. Vörubifreiðin hélst á veginum og sakaði ökumann hennar ekki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert