Rætt um samstarf Íslands og Kamerún á sviði sjávarútvegs

Fastafulltrúar Íslands og Kamerún hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherrarnir Hjálmar W. Hannesson og Martin Belinga-Eboutou, undirrituðu í New York í gær yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna.

Fastafulltrúarnir ræddu á fundi sínum möguleika á samstarfi ríkjanna, fyrst og fremst á sviði sjávarútvegs.

Kamerún liggur við vesturströnd Mið-Afríku og er nær fimmfalt stærra en Ísland að flatarmáli. Íbúar landsins eru ríflega 17 milljónir. Kamerún var frönsk og bresk nýlenda fram til ársins 1960 þegar ríkið varð sjálfstætt, að því er segir á vef stjórnarráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert