Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi og 160 þúsund króna sekt fyrir ítrekuð fíkniefnabrot. Tveir aðrir menn voru dæmdir í sekt fyrir aðild að nokkrum málanna en fjórði maðurinn var sýknaður.
Sá sem þyngsta dóminn hlaut var einnig sviptur ökuréttindum í 3 ár og dæmdur til að greiða 750 þúsund krónur í sakarkostnað.