Umferðarslys á mótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs

Umferðartafir eru nú við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugavegs, vegna umferðarslyss, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík. Munu lögreglubíll og fólksbíll hafa rekist þar saman. Þrennt var flutt á slysadeild eftir áreksturinn, tveir lögreglumenn og ökumaður fólksbifreiðar en ekki liggur fyrir hvort um alvarleg meiðsl var að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert