Reynslan sýnir að um sjö af hverjum tíu verkefnum, sem ráðist er í á vegum hins opinbera, fara fram úr kostnaðaráætlun. Þetta er niðurstaða rannsókna Þórðar Víkings Friðgeirssonar aðjúnkts við Háskólann í Reykjavík, sem hefur rannsakað áætlanagerð og vinnur nú að smíði líkans til að nota við ákvarðanir og mat á áhættu.
Að sögn Þórðar Víkings, sem skoð aði 70 opinber verkefni, er framúrkeyrslan umfram kostnaðaráætlun vegna Grímseyjarferjunnar ekkert einsdæmi og bendir hann á Þjóðminjasafnið, Þjóðmenningarhúsið, Leifsstöð, Náttúrufræðihúsið, skrifstofur Alþingis og Orkuveituhúsið, sem hafi farið heila fjóra milljarða fram úr áætlun. Þórður Víkingur segir að það þurfi ekki að koma á óvart að áætlanir standist ekki:
„Áætlun er bara tilgáta, það sem menn halda að muni gerast. Hins vegar ætti þetta að vera svo að stundum fari verkefni fram úr áætlun en stundum sé nið urstaðan aftur á móti betri en áætlað var. Svo er alls ekki, heldur er nánast allt á verri veginn, verkefni fara yfirleitt fram úr kostnaðaráætlun.“
Nánar er fjallað um þetta í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.