Minniháttar meiðsl í hörðum árekstri í Þrengslunum

mbl.is/Guðmundur Karl

Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir harða aftanákeyrslu í Þrengslunum laust upp úr klukkan 13 í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Hann mun þó ekki hafa slasast alvarlega. Við áreksturinn fór annar bíllinn útaf og valt. Ökumaður var einn í öðrum bílnum, en tvennt var í hinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert