Lögregla hefur lokið nákvæmri leit í skútunni sem fíkniefni fundust í á Fáskrúðsfirði, en skútan er nú í flugskýli á Keflavíkurflugvelli. Ekki fannst meira af efnum í skútunni, að því er fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Yfirheyrslur yfir mönnunum sem handteknir voru vegna málsins standa enn.