Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem var handtekinn vegna nauðgunarkæru

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Brynjar Gauti

Maður sem var handtekinn í gærkvöldi af lögreglunni á Selfossi vegna nauðgunarkæru konu á fertugsaldri í Vestmannaeyjum í gærmorgun var í kvöld sleppt úr haldi lögreglunnar á Selfossi. Rannsókn málsins heldur áfram og hefur hinn kærði verið boðaður til frekari yfirheyrslu á morgun. Unnið er að skýrslutöku af vitnum og beðið niðurstöðu rannsókna, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Við rannsókn málsins bárust böndin að manninum og var hann handtekinn af lögreglunni á Selfossi, að beiðni lögreglunnar í Vestmannaeyjum, en maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert