Eldur kviknaði í bifreið við Kristsnes á Akureyri um klukkan 21 í gærkvöldi. Ökumaður brenndist á andliti er hann lyfti vélarhlífinni til að slökkva eldinn. Maðurinn sem er á fimmtugsaldri er ekki talinn mikið slasaður. Slökkvilið Akureyrar slökkti eldinn. Bifreiðin sem er bandarískur sportbíll var dregin af slysstað óökufær.