Harður árekstur á Akureyri

Þrír voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar eftir harðan árekstur á gatnamótum Þingvallastrætis og Mýrarvegar á Akureyri skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Meiðsl þeirra reyndust þó vera minniháttar. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var öðrum bílnum ekið þvert yfir gatnamótin en hinn kom á móti og tók ökumaður hans vinstribeygju þvert í veg fyrir hinn. Bílarnir skemmdust mikið og mun a.m.k. annar þeirra vera ónýtur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert