Lögreglan lýsir eftir vitnum

Á föstudaginn varð umferðaróhapp á mótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegar í Reykjavík um klukkan 14:38 , en umferð þar er stjórnað með umferðarljósum. Lentu þar saman fólksbifreið af Toyota gerð, blá að lit, sem ekið var norður Kringlumýrarbraut og lögreglubifreið sem ekið hafði verið austur Laugaveg. Þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert