Forseti Íslands heldur fyrirlestur í Harvard

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Ómar

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur síðar í dag opnunarfyrirlestur í nýrri röð fyrirlestra við Harvard háskólann í Boston. Fyrirlestraröðinni sem ber heitið Framtíð orkunnar (The Future of Energy) er ætlað að opna nýja sýn á skipan orkumála á 21. öldinni og hvernig hægt er að virkja nýjar orkulindir svo að efnahagslegar framfarir jarðarbúa leiði ekki til hættulegra breytinga á loftslagi veraldar. Fyrr um daginn mun forseti eiga fundi með dr. Daniel Schrag forstöðumanni Umhverfismiðstöðvar Harvard háskóla og stúdentum við skólann, samkvæmt tilkynningu.

Á morgun, miðvikudaginn 26. september, kl. 10 að staðartíma mun forseti flytja í Washington vitnisburð fyrir orkunefnd Öldungadeildar Bandaríkjaþings í vitnaleiðslum nefndarinnar (Senate Hearing) í tengslum við frumvarp um stórfellda eflingu á nýtingu jarðhita í Bandaríkjunum. Forsetinn mun svara fyrirspurnum Öldungadeildarþingmanna en slíkar yfirheyrslur eru reglubundinn þáttur í stefnumótun og löggjafarstarfi Bandaríkjaþings, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert