Staðfest hefur verið í Héraðsdómi Reykjavíkur að Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlögmaður er í raun Hermannsson. Dómur í faðernismáli hans féll í síðustu viku og þar kemur fram að sannað telst með DNA prófi að Hermann væri faðir Lúðvíks.
Í hádegisfréttum Stöðvar 2 staðfesti Dögg Pálsdóttir lögmaður Lúðvíks að stefndi hefði verið staðfestur sem faðir Lúðvíks.
Niðurstaða úr kjarnsýru- eða DNA prófi sem fékkst í síðasta mánuði staðfesti að 99.9% líkur væru á því að Hermann væri faðir Lúðvíks.