Ekki ekið á mann við Hraunberg í byrjun ágúst

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í svokölluðu Hraunbergsmáli hefur leitt í ljós að ekki var ekið á manninn í umræddu máli. Málavextir voru á þá leið að lögreglan var kölluð að Hraunbergi í Breiðholti föstudagskvöldið 4. ágúst sl. Þar lá karl á sjötugsaldri illa á sig kominn en grunur lék á að ekið hefði verið á hann.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu beindist grunur strax að ákveðnum bíl og var ökumaðurinn yfirheyrður. Við rannsókn málsins kom ekkert það fram sem bendir til að hann hafi átt hlut að máli.

Sama á við um farþega sem voru í bílnum en umrætt ökutæki var rannsakað ítarlega. Það er jafnframt álit sérfróðra aðila að áverkar á hinum slasaða séu ekki tilkomnir vegna umferðarslyss.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert