Magnús Reynir Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins og þingflokks Frjálslynda flokksins. Enn fremur hefur Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður flokksins, verið ráðinn í hlutastarf fyrir þingflokkinn. Báðir hafa þegar hafið störf að því er kemur fram í tilkynningu frá Frjálslynda flokknum.