Það var mikið um dýrðir þegar nýjar vatnsrennibrautir voru teknar í notkun við sundlaugina í Neskaupstað í dag og öllum íbúum boðið frítt í sund í tilefni dagsins. Börn og unglingar létu sig ekki vanta og voru mætt stundvíslega klukkan tólf til að prófa nýju græjurnar, sem munu vera einhverjar lengstu rennibrautir á Íslandi.