Ölvaður ökumaður ók á kyrrstæðan bíl

Ölvaður ökumaður ók á kyrrstæðan bíl á Heiðarvegi í Vestmannaeyjum í morgunsárið. Maðurinn slapp þó án meiðsla líkt og farþeginn sem var með honum í bílnum.

Annar ökumaður var tekinn ölvaður í bænum en sá komst þó hjá því að valda árekstri. Báðir mennirnir eru á þrítugsaldri og voru verulega ölvaðir, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert