Alþingi verður sett í dag

Alþingishúsið.
Alþingishúsið. mbl.is/Þorkell

Alþingi, það 135. í röðinni, verður sett í dag. Athöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Séra Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holti undir Eyjafjöllum, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur við Dómkirkjuna, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 135. löggjafarþing, og að því loknu minnist forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, látins alþingismanns, látins fyrrv. alþingismanns og ávarpar þingheim. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. fjögur síðdegis. Þegar fundi er framhaldið verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008 verður útbýtt.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða annað kvöld og fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga á fimmtudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert