Grimmum hundi lógað á Akranesi

Eigandi Schäferhunds á Akranesi tilkynnti lögreglu í dag að hann hefði lógað hundinum, sem réðist á konu á götu í bænum.

Fram kom á fréttavefnum Skessuhorni í gær, að dýraeftirlitsmaður á Akranesi treysti sér ekki til að aðhafast vegna hundsins þar sem eigandinn hafi haft í alvarlegum hótunum við sig.

Lögreglan á Akranesi segir, að eigandinn hafi í dag höggvið á þann hnút, sem málið var komið í.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert