Leitað árangurslaust að strokuföngum í alla nótt

Leit stóð í alla nótt í umdæmi Selfosslögreglunnar að tveim föngum sem struku af Litla hrauni um níuleytið í gærkvöldi, en nú um sjöleytið í morgun hafði hún engan árangur borið. Lögreglan á Selfossi hefur sinnt leitinni, með aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hafa bílar á svæðinu m.a. verið stöðvaðir og leitað í þeim. Að sögn Selfosslögreglunnar eru engar vísbendingar eða grunur um hvert fangarnir hafi farið.

Fangarnir voru á AA-fundi sem lauk um klukkan 21, en skiluðu sér ekki af fundinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert