Þrjú slys í Kópavogi

Þrjú slys urðu í Kópavogi í gær og gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Karlmaður á fimmtugsaldri ökklabrotnaði þegar vinnupallur hrundi á hann í Kópavogi síðdegis í gær. Maðurinn var að taka vinnupallinn niður þegar óhappið varð.

Þá slasaðist karlmaður á þrítugsaldri á íþróttaæfingu í gærkvöld. Skömmu fyrir miðnætti var karlmaður á fertugsaldri fluttur á slysadeild eftir slæma byltu en ekki er vitað frekar um meiðsli hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert