19 kærðir fyrir brot gegn lögreglusamþykkt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af 19 manns sem brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar í nótt. Þá voru 5 minniháttar líkamsárásir kærðar til lögreglu auk þess sem 6 voru teknir ölvaðir við akstur. Að sögn lögreglu var talsverð ölvun í miðborginni en færra var af fólki en vanalega enda nokkuð kalt í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert