Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Húsavík í kvöld með þeim afleiðingum að hann lenti á ljósastaur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var ísing á götunni og bílinn á sumardekkjum og því fór sem fór. Þrjú ungmenni voru í bílnum og sluppu þau án meiðsla en bíllinn er töluvert skemmdur.