Kveikt var í ruslagámi, sem stóð við verslunina Nettó við Víkurbraut í Grindavík í gærkvöldi. Slökkviliðið Grindavíkur kom á staðinn og slökkti eldinn. Lögreglan á Suðurnesjum segir, að engar skemmdir hafi orðið á verslunarhúsnæðinu en gámurinn skemmdist talsvert. Málið er í rannsókn.