Slökkviliðið á Akureyri var kallað út vegna elds sem logaði í einbýlishúsi í Langholti á Akureyri í dag. Að sögn slökkviliðsins var eldurinn ekki mikill þegar komið var á staðinn en reykur var talsverður. Tvennt var í húsinu þegar eldurinn kom upp og voru þau flutt á sjúkrahús til skoðunar. Eldurinn var fljótt slökktur og húsið reykræst. Nokkuð tjón varð í húsinu af völdum reyks.