27 flóttamenn væntanlegir til landsins á morgun

Á morgun koma 27 kólumbískir flóttamenn til landsins í boði íslenskra stjórnvalda. Alls taka stjórnvöld á móti 30 kólumbískum flóttamönnum í ár, en ein þriggja manna fjölskylda var áður komin til landsins. Um er að ræða konur og börn.

Á vef félagsmálaráðuneytisins kemur fram að flóttafólkið kemur hingað til lands frá Ekvador, en fólkið hafði flúið ofbeldi, stríðsátök og ofsóknir í heimalandi sínu Kólumbíu. Vegna sérstakra aðstæðna fólksins í Ekvador fór Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna fram á það við íslensk stjórnvöld að fólkinu yrði veitt hæli á Íslandi.

Flóttafólkið mun setjast að í Reykjavík og munu Reykjavíkurborg og Rauði krossinn sjá um móttöku þess. Flóttafólkið tekur þátt í sérstöku tólf mánaða aðlögunarverkefni sem felur meðal annars í sér að Reykjavíkurborg útvegar því húsnæði, félagslega ráðgjöf, og íslenskunám og samfélagsfræðslu. Börn og ungmenni munu sækja leik-, grunn- og framhaldsskóla í borginni. Börnin fá sérstakan stuðning í skólum og móðurmálskennslu.

Rauði krossinn útvegar fólkinu húsgögn og annað nauðsynlegt innbú. Fjölmargir stuðningsaðilar á vegum Rauða krossins munu aðstoða flóttafólkið við að tengjast samfélaginu og verða því innan handar með ýmislegt sem getur komið upp við aðlögun í nýju landi. Félagsmálaráðuneytið hefur heildarumsjón með verkefninu. Utanríkisráðuneytið ber kostnaðinn af aðlögunarverkefninu til eins árs, samkvæmt frétt á vef félagsmálaráðuneytisins.

Frá árinu 1996 hafa íslensk stjórnvöld tekið á móti 247 flóttamönnum í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Rauða krossinn og sveitarfélög í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert