Harður árekstur á Akureyri

mbl.is/Þorgeir Baldursson

Harður árekstur tveggja bila varð á gatnamótum Þingvallastrætis og Vallargerðis á Akureyri síðdegis í dag. Þar mun jeppa hafa verið ekið í veg fyrir fólksbíl. Ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki en ökumaður fólksbílsins fann fyrir eymslum. Fólksbíllinn var óökufær eftir áreksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert