Föstudaginn 5. október síðastliðinn um klukkan 21:09 varð umferðaróhapp á mótum Snorrabrautar og Bústaðavegar í Reykjavík, en umferð þar er stjórnað með umferðarljósum. Lentu þar saman fólksbifreið af Toyota Corolla gerð, grá að lit, sem ekið var suður Snorrabraut og fólksbifreið af gerðinni VW Polo, blár að lit, sem ekið hafði verið norður Bústaðaveg með fyrirhugaða akstursstefnu að aka Hringbraut (gömlu) til vestur.
Ágreiningur er uppi um stöðu umferðarljósa þegar áreksturinn varð og því eru þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu, beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.