Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Lithái sæti gæsluvarðhaldi til morgundagsins. Þá var einnig staðfestur úrskurður um að annar Lithái sæti farbanni til 1. nóvember. Báðir mennirnir eru grunaðir um aðild að umfangsmiklum þjófnaði úr verslunum hér á landi en alls voru 15 Litháar handteknir vegna málsins.