Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist í fréttum Sjónvarpsins treysta Birni Inga Hrafnssyni, formanni borgarráðs, og hans fólki í borgarstjórn til að klára málið í kringum sameiningu orkufyrirtækja.
Guðni sagði í sjónvarpsfréttunum, að Sjálfstæðisflokkurinn væri í miklum vandræðum í málinu og þar innandyra væru gríðarleg átökum. Hann sagði að málið ylli raunar úlfúð í öllum flokkum.