Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir að vera með rúm 3,2 kíló af hassi, 301 gramm af amfetamíni, 238 grömm af maríjúana og lítilsháttar af kókaíni auk hálfrar e-töflu í fórum sínum.
Fíkniefnin fundust við húsleit heima hjá manninum í Mosfellsbæ og í húsnæði sem hann réði yfir í Hafnarfirði. Einnig fannst riffill með kíki sem maðurinn hafði ekki leyfi fyrir.
Maðurinn játaði að hafa ætlað að selja hluta af fíkniefnunum.