Skildi bílinn eftir á hringtorgi

Loka þurfti hringtorginu á Hringbraut við Suðurgötu í morgun þar sem ökumaður bíls lét sig hverfa eftir að hafa ekið útaf í torginu. Bíllinn er nokkuð skemmdur og var hann dreginn á brott með kranabíl. Hann er samkvæmt upplýsingum lögreglu ekki á skrá yfir stolnar bifreiðar en ökumaður hans hefur enn ekki gefið sig fram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert