Lögreglan í Borgarfirði stöðvaði ökumann á þrítugsaldri eftir að hafa mælt hann á 146 km hraða á norðurleið á Vesturlandsvegi við Hafnarskóg um klukkan fjögur í dag. Ökumaðurinn sem var einn í bílnum reyndist síðar vera undir áhrifum fíkniefna. Annar ungur ökumaður sem reyndist vera undir áhrifum fíkniefna var stöðvaður skammt fyrir utan Borgarnes í morgun.