Fimmtán ára ökumaður á felgunni á Selfossi

Fimmtán ára ökumaður var stöðvaður á Selfossi um klukkan hálf sjö í morgun. Var pilturinn mjög drukkinn auk þess sem sprungið var á einu dekki bílsins sem hann ók og rásaði bíllinn því um allan veg.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi var tilkynnt um að bíl væri ekið með undarlegum hætti vestan við Selfoss skömmu áður en pilturinn var stöðvaður en hann var kominn inn í bæinn er lögregla náði að stöðva hann. Þykir hin mesta mildi að ekki hlaust slys af glæfraakstri hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert