Brot Skífunnar á samkeppnislögum staðfest í héraðsdómi

Héraðsdómur staðfesti í dag að Skífan og Hagkaup hafi á árunum 2003 og 2004 brotið samkeppnislög og þarf Dagur Group ehf. (áður Skífan) aðfyrir vikið að greiða 65 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Samkeppniseftirlitið ákvað á síðasta ári sektina, en var málinu skotið til héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 16. júní 2006 var Skífan fundin sek um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. Þetta gerði Skífan með gerð ólögmætra samninga við Hagkaup um sölu á hljómdiskum og tölvuleikjum, annars vegar á árinu 2003 og hins vegar á árinu 2004, sem báðir fela í sér einkakaup og samkeppnishamlandi afslætti.

Með einkakaupum í þessu samhengi er átt við að Hagkaup skuldbundu sig til að kaupa í heildsölu tiltekið hátt hlutfall af öllum umræddum vörum, eingöngu af Skífunni. Með samningunum voru keppinautar Skífunnar í heildsölu á hinum tilgreindu vörum nánast útilokaðir frá viðskiptum við Hagkaup sem er stór seljandi á m.a. hljómdiskum. Um var að ræða ítrekað brot Skífunnar á samkeppnislögum.

Fjallað var um fyrra lögbrot Skífunnar í ákvörðun samkeppnisráðs frá árinu 2001 og hæstaréttardómi frá árinu 2004. Brot Skífunnar á samkeppnislögum sem nú er dæmt fyrir var umfangsmeira en eldra brot fyrirtækisins. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var Degi Group ehf. (áður Skífunni) gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 65 milljónir kr.

Dagur Group ehf. (sem áður hét Skífan en núna Árdegi ehf.) skaut þessu máli til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 22. september 2006. Í úrskurði áfrýjunarnefndar var ákvörðun Samkeppniseftirlitsins staðfest. Taldi nefndin að brot Skífunnar hafi verið bæði augljós og alvarleg og að fyrirsvarsmönnum fyrirtækisins hafi mátt vera ljóst að að umræddir samningar færu gegn samkeppnislögum og ákvörðun samkeppnisráðs frá 2001. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um fjárhæð stjórnvaldssekta var ennfremur staðfest.

Árdegi höfðaði síðan mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem þess var krafist að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi eða stjórnvaldssektin yrði felld niður eða stórlega lækkuð. Í dómi sínum í dag hafnaði Héraðsdómur þessum kröfum Árdegis. Féllst dómurinn á að samkeppnislög hefðu verið brotin og að álögð sekt væri í samræmi við alvarleg brot málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert