Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Nýr samningur tekur gildi þann 01. nóvember 2007 og gildir til loka ársins 2009 en möguleiki er að framlengja samninginn um tvö ár til viðbótar eða til loka ársins 2011.
Flugfélag Íslands tók aftur upp flug til Eyja fyrir réttu ári og hefur sinnt því meðan unnið var að útboði. Í framhaldi af útboði sem haldið var sl. sumar ákvað samgönguráðherra svo að fela Vegagerðinni að semja við Flugfélag Íslands um flug á þessari leið.
Flognar verða 15 ferðir í viku á veturna, tvær ferðir alla daga nema föstudaga, þá verða þrjár ferðir farnar. Yfir sumartímann verða 3 ferðir í boði alla daga nema miðvikudaga og laugardaga en þá verða 2 ferðir í boði.