Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur boðað yfirmenn leikskóla og annarra vistunarstofnana í borginni til fundar. Ætlunin er að leita lausna á mönnunarvanda stofnananna. Þetta kom fram í morgunfréttum Útvarps.
Haft er eftir Degi að tími sé kominn að til að snúa athyglinni að málum sem snúa beint að fólki og fjölskyldum í borginni. Hann segir tilgang fundarins að fá að vita hver staða mála sé hjá umræddum stofnunum. Dagur segir þessi mál hafa fengið of litla athygli að undanförnu.