Nokkuð hefur borið á að tilkynnt sé um lausagöngu búfjár til lögreglu og það við um lausagöngu kinda, hrossa og kálfa á eða við vegi. Flestar tilkynningarnar hafa komið frá vegfarendum sem leið áttu um Þjóðveg 1. Lögregla vill vara vegfarendur við þessu og minna þá á að aka varlega og gleyma því ekki að mikil hætta getur stafað af búfénaði á og við vegi á þessum árstíma.