Brotist inn í gróðurhús í Hveragerði

Tilkynnt var um innbrot í gróðurhús í Hveragerði nú kl. 6:30 í morgun og að sögn lögreglunnar á Selfossi var átta gróðurhúsalömpum stolið. Hún segir litlar skemmdir hafa verið unnar á gróðurhúsinu sjálfu. Ekki er vitað hver eða hverjir eru að verki. Lögreglan segir að þetta sé í þriðja eða fjórða sinn sem brotist sé inn í sama gróðurhúsið á stuttum tíma. Greinilegt sé þykir að einhver ræktun sé í gangi annarsstaðar þar sem vöntun er á ljósi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert