Bæjarráð Hafnarfjarðar hélt aukafund í morgun þar sem Gunnar Svavarsson fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn Hitaveitu Suðurnesja mætti á fundinn og gerði grein fyrir eigendafundinum sem haldinn var mánudaginn 15. október sl.
Á fundinum í morgun lögðu fulltrúar Samfylkingar fram eftirfarandi bókun og tók fulltrúi VG undir bókunina en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. „Bæjarráð Hafnarfjarðar áréttar á grundveli hluthafasamkomulags milli fjögurra stærstu hluthafa i Hitaveitu Suðurnesja hf. frá því í júlí sl. að engar breytingar séu gerðar á samþykktum og félagslegri stöðu HS hf. án aðkomu allra eigenda félagsins. Jafnframt ítrekar bæjarráð Hafnarfjarðar að þeir þættir sem snúa að uppskiptingu HS hf. og fjallað er um í samrunasamkomulagi REI og Geysis Green hafa ekki verið formlega teknir fyrir á eigendafundi HS hf."