Nýtt pósthús í Stykkishólmi

Nýtt pósthús í Stykkishólmi
Nýtt pósthús í Stykkishólmi

Íslandspóstur opnar nýtt pósthús að Aðalgötu 31, Stykkishólmi, föstudaginn 19.október. Opnunin er einn áfanginn í áætlunum Íslandspósts að reisa 10 ný pósthús ásamt því að endurbyggja á 6 öðrum stöðum víðs vegar um landið.

Í tilkynningu kemur fram að pósthúsið í Stykkishólmi er þriðja nýja pósthúsið á landsbyggðinni sem Íslandspóstur opnar á árinu, á eftir Húsavík og Reyðarfirði í ágúst síðastliðnum. Á næstu misserum munu jafnframt opna 7 ný pósthús víðsvegar um landið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert