Útgerðarfyrirtækið Bergur-Huginn hf. hefur selt togarann Vestmannaey sem hefur legið við bryggju síðustu misseri. Útgerðin fékk tvo nýja báta á árinu, Vestmannaey og Bergey og var gömlu Vestmannaey í kjölfarið lagt. Hið gamla aflaskip mun fá nýtt hlutverk við strendur Argentínu en það er spænskt útgerðarfyrirtæki sem keypti skipið. Greint er frá þessu á sunnlenska fréttavefnum sudurland.is
Skipið var smíðað í Japan 1972 og er 1000 tonna togari. Skipið er tæplega 60 metra langt og tæpir tíu metrar á breidd.